1. febrúar 2011 |
Félagsmálastjóri Reykhóla og Stranda hefur störf
Hildur Jakobína Gísladóttir, sem fyrir skömmu var ráðin í hina nýju stöðu félagsmálastjóra Reykhóla og Stranda, hefur störf í dag, 1. febrúar. Hún er boðin hjartanlega velkomin. Hildur er með aðsetur á skrifstofu Strandabyggðar en mun hafa viðveru í Reykhólahreppi einu sinni í viku, í fyrsta sinn núna á fimmtudaginn, 3. febrúar. Hægt er að hafa samband við Hildi í síma 451 3510 og í netfanginu felagsmalastjori@strandabyggd.is. Íbúar Reykhólahrepps eru hvattir til að nýta sér þjónustu hennar.
Sjá nánar um menntun og starfsferil Hildar:
13.01.2011 Félagsmálastjóri á Ströndum og í Reykhólahreppi
Ásta Sjöfn, rijudagur 01 febrar kl: 20:05
Velkomin til starfa Hildur! Hlakka til að sjá þig í Reykhólahreppi