12. mars 2012 |
Félagsmálastjórinn kemur ekki að þessu sinni
Hinn vikulegi viðverutími Hildar Jakobínu Gísladóttur, félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps, fellur niður á Reykhólum á morgun. Að forfallalausu verður hún á venjulegan hátt á Reykhólum á þriðjudaginn í næstu viku. Hægt er að hafa samband við hana í tölvupósti og síma 842 2511.