27. nóvember 2014 | vefstjori@reykholar.is
Félagsvistin heldur áfram
Annað spilakvöldið í þriggja kvölda félagsvist sem Nemendafélag Reykhólaskóla stendur fyrir er núna í kvöld, fimmtudag. Spilað er í borðsal skólans og hefst spilamennskan kl. 20. Veglegir vinningar í flokkum kvenna og karla, bæði fyrir hvert kvöld og fyrir öll kvöldin samanlagt. Þetta framtak er liður í fjáröflun félagsins.