Tenglar

24. júlí 2009 |

Ferðafólk þyrpist út í Flatey

Vöfflubakstur við opinn glugga í Flatey. Ljósm. Golli / Vestfirðir sumarið 2009.
Vöfflubakstur við opinn glugga í Flatey. Ljósm. Golli / Vestfirðir sumarið 2009.
Bæði innlendir og erlendir ferðamenn hafa streymt til Flateyjar á Breiðafirði það sem af er sumri. Þess eru dæmi að yfir 200 manns heimsæki eyjuna á einum degi. Ingibjörg Pétursdóttir hótelstýra á Hótel Flatey segir þetta búið að vera mikið fjör. Litla hóteleldavélin hafi varla kólnað í tvo mánuði. Öll 25 herbergi hótelsins eru yfirleitt uppbókuð og mikill gestagangur. Ingibjörg segir Flatey ennþá vera í tísku meðal ferðafólks. Allt stefni í enn eitt metsumar í ferðaþjónustu í Flatey.

 

Þetta kom fram í Ríkisútvarpinu.

Eins og mestur hluti Breiðafjarðareyja er Flatey í Reykhólahreppi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31