Tenglar

23. mars 2016 |

Ferðafólk til fjalla fari með gát

Að venju má búast við að ferðalög á fjöllum aukist þegar páskar eru framundan og því vill Landsnet minna á að víða á hálendinu getur verið hættulega stutt upp í háspennulínur vegna mikilla snjóalaga. Þá skal áréttað að háspennulínur eru ekki alltaf sýnilegar vegna snjóa og slæms skyggnis. Í miklu fannfergi minnkar bil frá jörðu að línu og ísing getur leitt til þess að línur sígi mikið. Við verstu aðstæður geta leiðarar verið á kafi í snjó og lífsnauðsynlegt að gæta ýtrustu varúðar.

 

Allir sem ætla að fara á fjöll, bæði vélsleða-, skíða- og göngufólk, eru því hvattir til að fara með mikilli gát nærri háspennulínum og möstrum. Góð regla er að athuga hvort og þá hvar háspennulínur liggja um þau svæði sem ferðast skal um, áður en lagt er af stað.

 

Landsnet

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31