Ferðakort og ferðahandbók Vestfjarða 2015-2016
Hið árlega Vestfjarðakort The Official Tourist Map sem Markaðsstofa Vestfjarða gefur út er komið í vinnslu og verður gefið út í 30 til 35 þúsund eintökum. Því er dreift á upplýsingamiðstöðvar um allt land, bílaleigur, flugvelli og alla helstu ferðamannastaði. Á kortinu eru í boði nokkur auglýsingapláss í mismunandi stærðum. Hér má finna kortið í fyrra á pdf-formi. Þeir sem vilja tryggja sér auglýsingapláss hafi samband við Díönu Jóhannsdóttur í netfanginu diana@vestfirdir.is.
Markaðsstofan er einnig að vinna að ferðahandbókinni The Official Tourist Guide 2015-2016. Fyrirtæki sem skráð eru í Markaðsstofuna eru þar með ítarskráningu. Mikilvægt er að allar helstu upplýsingar séu réttar í gagnagrunninum. Mælt er með því að ferðaþjónar fari inn í LEITA á vef Markaðsstofunnar og athugi hvort skráning þeirra sé rétt. Mikilvægt er að skoða hvort fyrirtækin séu skráð í rétta flokka, sérstaklega í flokknum AFÞREYING þar sem mjög margir flokkar eru í boði.