Ferðamálafundur á Hólmavík
Ferðamálastofa býður til funda vegna Þróunarverkefnis um endurskoðun upplýsingaveitu til ferðamanna (sjá dagskrá hér neðst). Einn þessara funda verður á Hólmavík á laugardag. Verkefnið er á forræði Ferðamálastofu og verkefnisstjóri þess Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, verkefnastjóri svæðisbundinnar þróunar. Verkefni þetta er unnið samkvæmt nýjum vegvísi og eru markmið þess:
- Að tryggja að bestu og nákvæmustu upplýsingar hvað varðar öryggi ferðamanna séu þeim alltaf aðgengilegar allt árið um kring um allt land.
- Að tryggja gæðastarf upplýsingaveitu á landsvísu.
- Að finna nýjar tæknilausnir sem nýta má utan eiginlegra upplýsingamiðstöðva.
- Að nýta og styðja við það stoðkerfi gestastofa, safna og annarra opinberra eininga sem fyrir er um allt land.
- Að nýta það fjármagn sem málaflokkurinn fær á sem hagkvæmastan en jafnframt árangursríkastan hátt.
Fundur verður haldinn á Galdrasafninu á Hólmavík mánudaginn 14. mars kl. 12 (tveir til þrír tímar). Súpa í boði Ferðamálastofu.
„Við hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í umræðunum um framtíðarskipan upplýsingaveitu í landshlutanum. Vinsamlegast sendið fundarboðið áfram á þá sem áhuga gætu haft á að sitja fundinn,“ segir í tilkynningu frá Hrafnhildi Ýri.
Þátttaka skal tilkynnt í netfangið hrafnhildur@ferdamalastofa.is fyrir kl. 13 föstudaginn 11. mars.
Dagskrá:
- Kynning á Þróunarverkefni um endurskoðun upplýsingaveitu.
- Kynning á niðurstöðum fyrsta fundar sem haldinn var með forsvarsmönnum landshlutamiðstöðva, Umhverfisstofnunar og þjóðgarða í byrjun desember.
- Kynning á niðurstöðum kostnaðargreiningar á upplýsingaveitu opinberra aðila á landsvísu og eftir landshlutum.
- Hópavinna og umræður – framtíðarskipan upplýsingaveitu í landshlutanum.
- Næstu skref (skipan vinnuhópa og fleira).