11. apríl 2012 |
Ferðamálasamtökin þinga í Bjarkalundi
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður á Hótel Bjarkalundi í Reykhólasveit um helgina. Auk venjulegra aðalfundarstarfa má nefna, að Harpa Eiríksdóttir mun kynna ferðamöguleika í Reykhólahreppi en Gústaf Gústafsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vestfjarða kynnir áform í markaðsmálum ferðaþjónustu innanlands á næstu árum.
Dagskráin er á þessa leið:
Föstudagur 13. apríl
- Kl. 18-19 Mæting og skráning.
- Kl. 19-20 Léttur kvöldverður.
- Kl. 20 Harpa Eiríksdóttir ferðamálafulltrúi Reykhólahrepps kynnir ferðamöguleika í sveitarfélaginu.
- Samkrull vestfirskra ferðaþjóna fram að háttatíma.
Laugardagur 14. apríl
- Kl. 9 Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða. Venjuleg aðalfundarstörf, ársreikningar, skýrsla stjórnar, stjórnarkjör og önnur mál.
- Íslandskynning. Gústaf Gústafsson kynnir sameiginleg áform markaðsstofa í landinu og Ferðamálastofu í innanlandsherferð næstu ára.
- Kl. 12 Hádegisverður.
- Kl. 13 Aðalfundur Vesturferða ehf. - lokaður fundur hluthafa, gönguferð í nágrenni Bjarkalundar í boði fyrir þá sem sitja ekki fundinn.
- Kl. 15 Kaffi í boði Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
- Kl. 15.30 Óvissuferð um Reykhólasveit með heimamönnum.
- Kl. 20 Hátíðarkvöldverður og síðan kvöldvaka.
Pantanir á gistingu og mat á Hótel Bjarkalundi berist í síma 434 7863 eða 4347762, helst fyrir fimmtudagskvöld. Verð fyrir allan pakkann er kr. 16.000 á mann. Í því verði er gisting í tvær nætur með morgunverði, léttum hádegisverði og hátíðarkvöldverði á laugardag. Súpa og brauð á föstudagskvöld kostar kr. 1.000.