17. desember 2014 |
Ferðast um kjálkann og tekur kynningarmyndir
Markaðsstofa Vestfjarða og Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa fengið styrk frá Vaxtarsamningi Vestfjarða til að ráðast í verkefni sem snýr meðal annars að ljósmyndun. Þetta er gert til að tryggja að til sé markaðsefni frá öllum svæðum Vestfjarða á öllum árstímum.
„Það er hann Haukur Sigurðsson sem mun ferðast um og taka myndir og ræða við fólk, ég hvet ykkur eindregið til að taka vel á móti honum,“ segir Díana Jóhannsdóttir hjá Markaðsstofunni.