Ferðastyrkir og ferðaþjónustustyrkir í boði
Styrkir til tvenns konar verkefna eru í boði vegna samstarfssamnings Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála (NATA). Annars vegar eru styrkir til verkefna í ferðaþjónustu og hins vegar ferðastyrkir, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu:
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta.
Styrkir vegna kynnis- og námsferða:
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Auglýstir eru ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtalinna:
- Skóla
- Íþróttahópa
- Tónlistarhópa
- Annars menningarsamstarfs
Skilafrestur umsókna er til 27. febrúar.
► Allar nánari upplýsingar hér á vef Ferðamálastofu