6. júní 2011 |
Ferðataskan - ferðaþjónustunámskeið í Búðardal
Námskeiðið Ferðataskan, ætlað öllum sem tengjast ferðaþjónustu, verður haldið í Leifsbúð í Búðardal næstu þrjá daga (7.-9. júní) frá kl. 13 til 18 hvern dag. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi stendur að námskeiðinu. Helstu þættir þess eru:
- Hlutverk starfsmanna í ferðaþjónustu
- Ferðamaðurinn, hvernig þarf að þjónusta hann?
- Hvað skiptir máli að vita um svæðið og önnur svæði í nágrenni?
- Samskipti, traust og samstarf
- Gleði og framkoma
- Upplýsingamiðlun og klúður ...
- Sögur og verkefni
Allar nánari upplýsingar er að finna hér.