4. júní 2010 |
Fermingar í Reykhólaprestakalli um helgina
Fermingarathafnir verða hjá sr. Elínu Hrund Kristjánsdóttur sóknarpresti á tveimur stöðum í Reykhólaprestakalli um helgina. Fimm börn fermast í Reykhólakirkju á morgun, laugardag, og hefst athöfnin kl. 13.30. Einn drengur fermist í Staðarhólskirkju í Saurbæ á sunnudag og hefst athöfnin kl. 15.
Fermingarbörnin í Reykhólakirkju eru þessi:
Arnar Ingi Karlsson, Kambi
Dagný Bjarkadóttir, Reykhólum
Eydís Sunna Harðardóttir, Tindum
Gestur Ólafur Ingvarsson, Reykhólum
Hjálmar Karl Ragnarsson, Reykhólum
Fermingardrengurinn í Staðarhólskirkju:
Hlynur Snær Sæmundsson, Lindarholti