18. mars 2016 |
Fermingarmessa í Reykhólakirkju á morgun
Þrjár fermingarmessur verða hjá sr. Hildi Björk Hörpudóttur sóknarpresti í Reykhólaprestakalli þetta vorið. Sú fyrsta verður á Reykhólum kl. 13 á morgun, laugardag. Þá fermast eftirtalin börn:
- Sandra Rún Gústafsdóttir, Reykhólum.
- Ólafur Stefán Eggertsson, Reykhólum.
- Brynjar Pálmi Björnsson, Akranesi.
Næsta fermingarmessa sr. Hildar verður á Reykhólum kl. 11 á sumardaginn fyrsta, 21. apríl. Þá fermast eftirtalin börn:
- Steinunn Lilja Torfadóttir, Reykhólum.
- Birna Björt Hjaltadóttir, Reykhólum.
- Markús Páll Bjarmi Hildarson, Reykhólum.
- Kristín Júlíana Baldursdóttir, Vogum.
Sú þriðja verður í Staðarkirkju kl. 13 sunnudaginn 24. apríl. Þá fermist:
- Védís Fríða Kristjánsdóttir, Stað.
Ein ferming enn verður í prestakallinu að þessu sinni. Hún verður í kirkjunni á Skarði á Skarðsströnd kl. 14 á skírdag, 24. mars, og verður í höndum sr. Önnu Eiríksdóttur í Búðardal. Þá fermist:
- Ragnar Hermannsson, Klifmýri á Skarðsströnd.