Tenglar

3. mars 2011 |

Fimm býli fengu hrútaverðlaun

Kristján, Þórður, Karl, Tómas og Arnór.
Kristján, Þórður, Karl, Tómas og Arnór.
1 af 4

Fimm sauðfjárbú fengu verðlaun fyrir úrvalsgóða hrúta á aðalfundi Sauðfjárræktarfélags Reykhólahrepps í gær. Bændurnir sem tóku við verðlaununum eru Arnór Hreiðar Ragnarsson á Hofsstöðum (sem er reyndar með sauðfé sitt á Klukkufelli), Karl Kristjánsson á Kambi, Kristján Þór Ebenesersson f.h. félagsbúsins á Stað, Tómas Sigurgeirsson á Reykhólum og Þórður Jónsson í Árbæ. Naumast þarf að taka fram, að jafnan kemur fleira fólk við sögu í búskapnum en viðtakendur verðlaunanna einir. Þannig eru það í raun fjárbúin sjálf sem hljóta verðlaunin.

 

Gestur fundarins var Lárus Birgisson, héraðsráðunautur í Borgarnesi. Fundurinn var vel sóttur.

 

Stjórn Sauðfjárræktarfélags Reykhólasveitar skipa Eiríkur Snæbjörnsson formaður, Karl Kristjánsson og Indiana Ólafsdóttir.

 

Félagið var stofnað á Reykhólum 24. janúar 1973. Í fyrstu stjórn voru Friðgeir Snæbjörnsson á Stað, Þórður Jónsson í Árbæ og Vilhjálmur Sigurðsson á Miðjanesi. Sigurgeir Tómasson á Reykhólum var formaður eitt ár en allt frá því snemma árs 1976 hefur Eiríkur Snæbjörnsson á Stað verið formaður félagsins, að undanteknum einu eða tveimur árum inni á milli þegar hann gaf ekki kost á sér.

 

Meðfylgjandi myndir tók Indiana Ólafsdóttir á Reykhólum. Smellið á þær til að stækka.

 

Athugasemdir

Bergsveinn G Reynisson, fimmtudagur 03 mars kl: 18:41

Til hamingju með glæsilegan árangur

Þessi viðurkenning er mjög gott framtak hjá Sauðfjárræktarfélaginu.

Við erum allt of löt að hrósa hvert öðru fyrir það sem er vel gert í samfélaginu.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31