Tenglar

21. júní 2008 |

Fiskihlaðborð og brenna í Bjarkalundi

Kokkarnir Ingvar Samúelsson og Árni Sigurpálsson hótelstjóri.
Kokkarnir Ingvar Samúelsson og Árni Sigurpálsson hótelstjóri.

Kræsingar hafsins verða á hlaðborði í Hótel Bjarkalundi kl. 18-20 í kvöld, laugardag 21. júní. Þar má nefna fiskisúpu, djúpsteiktan steinbít, ofnbakaðan fisk með aspas, krækling, fiskikæfu (paté), rækjurís og plokkfisk með tilheyrandi meðlæti. Að málsverði loknum kl. 20 tendrar Gulla á Gróustöðum bálköst með logandi örvarskoti. Í dag er lengstur sólargangur og jafnframt er útlit fyrir hægviðri og sólarblíðu eins og var í gær.

 

Fagnaður með brennu hefur lengi verið fastur liður í Bjarkalundi um Jónsmessuleytið. Ekki verður neinn dansleikur eða annað tilstand heldur munu gestir njóta náttúrunnar í friðsæld. Á það mætti minna, að ekki er nema 200 km akstur frá Reykjavík og þangað til komið er vestur í Reykhólahrepp. Í Bjarkalund eru 215 km - á bundnu slitlagi alla leið.

 

Borðapantanir fyrir sjávarréttahlaðborðið eru í síma 434 7863 og 434 7762. Verðið er kr. 3.600 og kaffi innifalið.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31