Tenglar

21. júlí 2011 |

Fjallað um ævintýri við Breiðafjörð

Frá Nýp á Skarðsströnd 2008. Verkið Jón eftir Magnús Pálsson í brekkunni.
Frá Nýp á Skarðsströnd 2008. Verkið Jón eftir Magnús Pálsson í brekkunni.

Erindi um ævintýri sem sögð hafa verið við Breiðafjörð og í Dölum verður flutt að Nýp á Skarðsströnd kl. 16 á laugardag, 23. júlí. Erindið flytur Aðalheiður Guðmundsdóttir íslenskufræðingur og aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands og þar fjallar hún ekki síst um fólkið sem sagði ævintýrin. Hún skoðar sögur og sagnafólk sem bjó í Dalasýslu, einkum um það leyti sem Jón Árnason stóð að þjóðsagnasöfnun sinni á 19. öld, en einnig fyrir og eftir þann tíma. Spurt verður hvort Dalamenn skeri sig frá sem heimildamenn ævintýra, og ef svo er, þá hvers vegna.

 

Í upphafi erindisins ræðir Aðalheiður jafnframt almenn einkenni ævintýra en lítur einkum til þess á hvern hátt íslensk ævintýri skera sig frá ævintýrum annarra Evrópuþjóða. Þar sem ævintýri tengjast alltaf „þjóðarsálinni“ á hverjum tíma, svo sem með því að endurspegla vonir og drauma fólksins, verður litið til þess samfélags sem mótaði þau og þá sér í lagi til hlutverks sagnaþulanna. Í stuttu máli verður sagt frá sagnaþulum og starfi þeirra og hvernig fræðimenn hafa leitast við að tengja ævi þeirra og lífshlaup þeim sögum sem þeir tileinka sér og miðla til annarra.

 

Aðalheiður er dóttir síðustu ábúenda að Nýp á Skarðsströnd en jörðin lagðist í eyði árið 1972. Síðan 2001 hafa nýir eigendur gert húsinu þar gott og efnt til ýmissa viðburða sem hafa farið fram á hlöðuloftinu, við húsið og í nágrenninu, - undir hatti Nýpurhyrnu; viðburðafléttu á sviði lista og fræða.

 

Aðalheiður Guðmundsdóttir

 

08.08.2008  Einhver áhugaverðasta myndlistaruppákoma sumarsins

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31