13. september 2012 |
Fjallskilaseðill Reykhólahrepps birtur
Fundargerð fjallskilanefndar Reykhólahrepps frá því í gær, þar sem afsagnir nefndarmanna voru dregnar til baka, var staðfest á fundi hreppsnefndar í dag. Jafnframt var fjallskilaseðill Reykhólahrepps 2012 samþykktur.
Fjallskilaseðilinn er að finna í reitnum Tilkynningar hér neðst til hægri á vefnum. Þar er einnig að finna fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, sem staðfest var í ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar í síðasta mánuði.
Fundargerð hreppsnefndar Reykhólahrepps og undirnefnda hennar er að finna í reitnum Fundargerðir hér neðst til vinstri á vefnum.