Tenglar

30. ágúst 2016 | Umsjón

Fjallskilaseðillinn birtur

Úr Kinnarstaðarétt fyrir þremur árum. Ljósm. Þórarinn Ólafsson.
Úr Kinnarstaðarétt fyrir þremur árum. Ljósm. Þórarinn Ólafsson.

Fjallskilaseðill Reykhólahrepps 2016 var samþykktur á síðasta fundi fjallskilanefndar og síðan staðfestur á fundi sveitarstjórnar. Seðilinn má sækja hér og í reitnum Tilkynningar neðst til hægri. Önnur mál sem tekin voru fyrir á fundi nefndarinnar voru viðgerðir á réttum í héraðinu núna í haust og á næsta ári.

 

Fundargerð nefndarinnar má sækja hér og í reitnum Fundargerðir neðst til vinstri.

 

Athugasemd / leiðrétting:

Efst á bls. 10 er misritun (þar stendur sunnudaginn en á að vera mánudaginn). Réttur er textinn þannig:

 

G: Hallsteinsnes að Djúpadal (frá Hjallaá út Hallsteinsnes að Djúpadal).

Skal leitað mánudaginn 19. sept. fyrri leit, seinni leit í framhaldi af smölun í Þorgeirsdal og Kollabúðum.

 

Atburðadagatal

« Jn 2026 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30