14. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Fjárhagsáætlunin 2013-2016 komin á vefinn
Gengið hefur verið frá fjárhagsáætlun Reykhólahrepps fyrir árin 2013-2016 til birtingar og hefur hún verið sett hér á vefinn undir liðnum Stjórnsýsla > Ársreikningar og áætlanir í valmyndinni vinstra megin. Áætlunin var samþykkt við seinni umræðu á fundi hreppsnefndar 11. desember.
Sjá einnig:
► 13.12.2012 Gert ráð fyrir stóraukningu handbærs fjár sveitarsjóðs