Tenglar

9. maí 2009 |

Fjarnámstækifæri við Háskóla Íslands í haust

Fjórar námsbrautir hefjast í haust hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, en þar verður kennt jafnhliða í staðnámi og fjarnámi. Þrjár þeirra eru á grunnstigi háskóla. Í fyrsta lagi leiðsögunám á háskólastigi, sem hófst haustið 2008 hjá Endurmenntun og hefur fengið frábærar viðtökur. Í öðru lagi mannauðsstjórnun og í þriðja lagi rekstrar- og viðskiptanám, en það eru námsbrautir sem hafa verið í mörg ár hjá Endurmenntun en hófust í fjarnámi haustið 2005. Á meistarastigi býður Endurmenntun svo nýja námsbraut um málefni innflytjenda, en þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem boðið er upp á þverfaglegt nám á þessu sviði.

 

„Allt sem þarf til að stunda fjarnám hjá Endurmenntun er nettengd tölva. Það skiptir því engu máli hvar viðkomandi er staddur á landinu. Endurmenntun Háskóla Íslands hefur frá árinu 2005 kennt námsbrautir sem hægt er að stunda í fjarnámi", segir í tilkynningu.

 

Fjarnemendur eru hluti af staðnemendahóp en hafa aðgang að upptökum úr kennslustundum á vef Endurmenntunar í gegnum námsvefinn Uglu. Þar eru allir fyrirlestrar og verkefni vistuð á heimasvæði námsins og nemendur geta hlustað og horft á fyrirlestra hvar og hvenær sem er. Á námsvefnum eru einnig glærur og tilkynningar frá kennurum, umræðuþráður og lifandi spjall. Þar er jafnframt vettvangur fyrir nemendur til að hafa samskipti innbyrðis og við kennara. Öll þjónusta við fjarnema er einstaklingsmiðuð. Fjarnemum er einnig velkomið að mæta á fyrirlestra ef þeir kjósa.

 

Sýnishorn eru á vef Endurmenntunar. Þar má skoða nánari upplýsingar um fyrirkomulag fjarnámsins og námsbrautirnar.

 

Umsóknarfrestur í námsbrautirnar er til 11. maí. Hægt er að sækja um á vef Endurmenntunar.

 

Nánari upplýsingar veitir Thelma Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Endurmenntunar, í netpósti eða í síma 525 4923.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31