16. október 2012 |
Fjáröflun: Unglingarnir ganga í hús og selja varning
Nemendur 8.-10. bekkjar Reykhólaskóla eru með fjáröflunarsöluna sína þessa viku, fara um byggðir sveitarfélagsins, knýja dyra og selja vörur. Jafnframt eru dósir og flöskur vel þegnar eins og endranær. Vörurnar og verðið er eins og hér segir:
- WC-pappír, tveggja laga, 48 rúllur, kr. 3.000
- WC-pappír lúxus, þriggja laga, 36 rúllur, kr. 4.000
- Eldhúspappír, 24 rúllur, kr. 3.000
- Harðfiskur, 700 g, kr. 1.500
- Lakkrís, 700 g, kr. 1.000
- Sorppokar, 25 stk, kr. 1.500
Fólk sem vill nýta sér þetta og styrkja unglingana er minnt á að hafa lausafé til reiðu.