30. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Fjóla á Tindum fimmtug
Fjóla Benediktsdóttir á Tindum í Geiradal er fimmtug í dag, 30. júlí, og þar með eru þau hjónin Fjóla og Hörður Grímsson orðin 101 árs samanlagt. Ætlunin er að hafa opið hús á heimili þeirra í tilefni afmælisins kringum miðjan ágúst og hafa þannig sama háttinn og þegar Hörður varð fimmtugur í fyrravor. Afmælisdagurinn hans er 5. mars en móttakan vegna fimmtugsafmælisins var tólf dögum seinna.
Greint verður frá því hér á vefnum þegar nær dregur hvenær opna húsið vegna afmælisins verður á Tindum.