11. janúar 2015 |
Fjölbreytt félagsstarf í boði á Reykhólum
Kominn er út bæklingur með upplýsingum um hið margháttaða tómstunda- og félagsstarf sem er á döfinni á Reykhólum á næstunni og fram á vor. Nefna má íþróttir fyrir unga jafnt sem eldri, viðfangsefnin í Félagsmiðstöðinni Skrefinu, vinnustofu í útskurði, föndur fyrir eldra fólk, viðburði og fundi á vegum félaga og samtaka af ýmsu tagi og barnastarfið í Reykhólakirkju.
► Bæklinginn má lesa hér (pdf).