Tenglar

12. desember 2012 |

Fjölgar í hreppnum: Oddvitinn stendur sína plikt

Vilberg með nýju dömuna á Hríshóli ásamt Andreu þegar hún kom færandi hendi með peysuna og sokkana.
Vilberg með nýju dömuna á Hríshóli ásamt Andreu þegar hún kom færandi hendi með peysuna og sokkana.
1 af 2

Andrea Björnsdóttir á Skálanesi er oddviti Reykhólahrepps og stöðu sinnar vegna ber henni að stuðla að fólksfjölgun í sveitarfélaginu. Þess vegna færði hún það í tal við Vilberg Þráinsson á Hríshóli snemma á þessu ári, að allsendis ótækt væri ef ekkert barn myndi fæðast í Reykhólahreppi á árinu 2012. „Ég hélt hvatningarræðu,“ segir hún, „og lofaði að prjóna peysu á barnið ef hann brygðist snöfurmannlega við.“

 

Skemmst er frá því að segja, að þeim Vilberg og Kötlu Ingibjörgu Tryggvadóttur á Hríshóli fæddist stúlka núna þann 20. nóvember og reyndist hún 3.400 g og 52 cm.

 

„Og auðvitað heimsótti ég þau með peysuna sem ég prjónaði eins og ég lofaði,“ segir Andrea. Til viðbótar lét hún sokka fylgja sem hún prjónaði líka af þessu tilefni.

 

Svo virðist sem oddvitinn skyldurækni hafi ekki látið þarna staðar numið heldur flutt fleiri hvatningarræður. Glöggir menn telja sig sjá nú þegar, að í Reykhólahreppi sé von á a.m.k. tveimur börnum til viðbótar á nýja árinu.

 

Svona eiga sýslumenn (og oddvitar) að vera!

 

Athugasemdir

Eyvindur, fimmtudagur 13 desember kl: 07:27

já það stefnir í góða árganga hér í hrepp

Björk Stefánsdóttir, fimmtudagur 13 desember kl: 12:29

Já Adda oddviti góð, greinilegt að hún stendur sig í hlutverkinu, er umhugað um fjölgun en ekki stöðnun, þeir sem vilja flotta peysu, drífa sig að eignast krakka, ;-)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31