29. nóvember 2014 | vefstjori@reykholar.is
Fjölgun í fjölskyldunni að Hólatröð 1 á Reykhólum
Þeim Sigrúnu Kristjánsdóttur og Ágústi Má Gröndal á Reykhólum fæddist stúlka núna á þriðjudaginn, 25. nóvember. Stúlkan litla leit dagsins ljós á sjúkrahúsinu á Akranesi, eins og algengt er þegar um fólk í Reykhólahreppi er að ræða. Á fyrri myndinni er fjölskyldan í stofunni við Hólatröð á Reykhólum en á þeirri seinni er hinn nýi íbúi Reykhólahrepps að horfa á heiminn.
Og núna má búast við alveg sérstakri heimsókn hvað úr hverju ...