Tenglar

10. nóvember 2008 |

Fjölgun í starfsliði atvest á suðursvæði

Magnús, Ragnar, Eyrún, Þorgeir og Guðrún.
Magnús, Ragnar, Eyrún, Þorgeir og Guðrún.
1 af 2

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða (atvest) hefur bætt við sig tveimur nýjum starfsmönnum á suðursvæði Vestfjarðakjálkans og eru þeir báðir með aðsetur í Skor, þekkingarsetri á Patreksfirði. Um er að ræða Guðrúnu Eggertsdóttur, sem ráðin hefur verið verkefnastjóri hjá atvest, og Magnús Ólafs Hansson, sem fram að þessu hefur verið verkefnastjóri hjá Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Sérstök áhersla verður lögð á samstarf við stjórnsýslu, fólk og fyrirtæki í Reykhólahreppi.

 

Guðrún Eggertsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað undanfarið á Patreksfirði við kennslu og við skrifstofustörf hjá sýslumanni. Guðrún hefur komið að stofnun og rekstri fyrirtækja og unnið að markaðsáætlanagerð. Starfssvið hennar verður nokkuð vítt og spannar m.a. hugmyndavinnu með frumkvöðlum og gerð viðskiptaáætlana auk almennrar ráðgjafar.

 

Magnús Ólafs Hansson hefur mikla reynslu af verkefnavinnu og atvinnusköpun víða á Vestfjörðum. Undanfarið hefur hann unnið að öflun verkefna fyrir Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp og tengist sú vinna niðurstöðum Vestfjarðaskýrslunnar svokölluðu.

 

Atvest hefur nú gert samning við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp um að störf Magnúsar Ólafs Hanssonar falli undir starfsemi atvest. Fjármögnun stöðugildisins verður hins vegar á hendi sveitarfélaganna, enda verða verkefni hans að mestu áfram tengd beinum hagsmunum þessara sveitarfélaga.

 

Með þessari aukningu í starfsliði atvest skapast nú forsendur til að vinna mun nánar með einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á suðursvæði Vestfjarðakjálkans. Sérstök áhersla verður lögð á Reykhólahrepp og samstarf við stjórnsýslu og fyrirtæki þar.

 

Á mynd nr. 1 eru Magnús Ólafs Hansson, Ragnar Jörundsson, Eyrún Sigþórsdóttir, Þorgeir Pálsson og Guðrún Eggertsdóttir.

 

Á mynd nr. 2 eru Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri atvest, Eyrún Sigþórsdóttir, sveitarstjóri á Tálknafirði, og Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31