Tenglar

6. janúar 2016 |

Fjórðungsþing á vorin og sérstakt haustþing

Frá síðasta Fjórðungsþingi á Patreksfirði í byrjun október.
Frá síðasta Fjórðungsþingi á Patreksfirði í byrjun október.

Nýjar samþykktir Fjórðungssambands Vestfirðinga (FV) sem samþykktar voru á 60. Fjórðungsþingi Vestfirðinga í haust tóku gildi núna um áramótin. Þær eru aðgengilegar hér á vef FV. Helsta breytingin er að Fjórðungsþing verður hér eftir haldið að vori (í maí). Þar skal afgreiða reikninga og ársskýrslur og leggja fram endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár. Að hausti (í september) skal síðan halda málþing um tiltekin hagsmunamál sveitarfélaganna, en dagskrá þess skal ákveða á Fjórðungsþingi að vori. Á haustþingi er einnig lögð fram fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir næsta ár.

 

Á kosningaárum til sveitarstjórna er kosningum í stjórn og nefndir FV frestað til haustþings, en annars fara kosningar fram að vori. Loks er kveðið skýrar á um að Fjórðungsþing kjósi formann stjórnar, en stjórn kjósi varaformann stjórnar, eins og verið hefur.

 

Með nýjum samþykktum er Menningarráð Vestfjarða formlega lagt niður og inn koma ákvæði um 9 manna úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða. Þá er nafni samgöngunefndar breytt í Fastanefnd um samgöngumál og fjarskipti.

 

Þetta kemur fram á vef Fjórðungssambandsins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31