Tenglar

7. september 2011 |

Fjórðungsþing vill framhaldsskóladeild á Hólmavík

Fjórðungsþing Vestfirðinga sem haldið var um helgina tók fyrir verkefni vegna Sóknaráætlunar landshluta, sem er átaksverkefni á vegum ríkisstjórnarinnar. Í aðdraganda þingsins fór fram forval á verkefnum í samvinnu við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á Vestfjörðum og var þeim síðan forgangsraðað á þinginu. Verkefnin taka mið af forsendum áætlunarinnar Ísland 20/20 samkvæmt tilmælum fjármálaráðuneytis vegna undirbúnings fjárlagagerðar. Miðað var við val á allt að sjö verkefnum sem verði á fjárlögum fyrir næsta ár.

 

Niðurstaða þingsins var að verkefnunum skuli raðað í eftirfarandi forgangsröð:

  • 1. Sókn í samgöngum Vestfjarða
  • 2. Auðlindasjóður
  • 3. Virkjun í Hvalá í Ófeigsfirði á Ströndum
  • 4. Framhaldsskóladeild á Hólmavík
  • 5. Umhverfisvottun Vestfjarða
  • 6. Háskóli hafsins
  • 7. Efling heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði

Tillögum þessum verður skilað til fjármálaráðuneytis núna á föstudaginn sem verkefnum vegna Sóknaráætlunar landshluta fyrir Vestfirði.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30