Tenglar

22. febrúar 2017 | Umsjón

Fjórir rekstrar- og verkefnastyrkir í Reykhólahrepp

Frá Báta- og hlunnindasýningunni.
Frá Báta- og hlunnindasýningunni.

Úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða eru veittir fjórir styrkir til reksturs og verkefna í Reykhólahreppi við fyrri úthlutun 2017, samtals að fjárhæð fjórar milljónir króna. Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum fær 2.400.000 króna rekstrarstyrk til eins árs, en verkefnastyrkir eru þessir:

 

Kr. 1.000.000

Vöruþróun og markaðssetning fyrir næringarefni og húðvörur úr þara og þangi (Gullsteinn ehf.)

 

Kr. 300.000

Tónlist með bátavélum (Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum)

 

Kr. 300.000

Fjölskyldan saman, 5 steinar í Reykhólahreppi (Jóhanna Ösp Einarsdóttir)

 

Ákveðið var að þessu sinni að veita samtals 53 styrki, en umsóknir voru 100. Reyndar eru fjárhæðir oft mun lægri en umbeðin upphæð. Framlögin skiptast í 49 verkefnastyrki og 4 stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana.

 

Hér má sjá skrá yfir styrkina og fleira varðandi Uppbyggingarsjóð Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31