22. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Flatey á Breiðafirði vistvæn og græn eyja
Áfram verði haldið með verkefnið Vistvæn Flatey. Þetta var einróma niðurstaða á aðalfundi Framfarafélags Flateyjar og jafnframt að félagið skuli leiða verkefnið til farsælla lykta með samstarfsaðilum sínum, Flateyjarveitum, Landmótun, Arkís og Reykhólahreppi.
Á Eyjaþingi Framfarafélagsins sumarið 2010 var rætt framtíðarsýn þátttakenda til Flateyjar. Meginstefið var þetta:
Gætt verði að jafnvægi manns og náttúru og horft til heildar og langs tíma. Náttúran verði sem ósnortnust og leitað stöðugleika milli náttúruverndar og frjálsræðis í ferðum og aðgengi. Flatey verði eins sjálfbært samfélag og kostur er.
Einnig höfðu þátttakendur m.a. þetta fram að færa um náttúruvernd og sjálfbærni:
- Draumur um vistvæna eyju, ósnortin, engin mengandi starfsemi.
- Sjálfbært samfélag, þ.e. flokkun sorps, moltugerð, fara vel með orku og vatn.
- Sjálfbær orkuöflun; vindorka, sólarorka, heitt vatn, sjávarföll.
- Sjálfbær ferðaþjónusta.
► Sjá nánar hér á vef Framfarafélags Flateyjar.