Tenglar

27. desember 2018 | Sveinn Ragnarsson

Flugeldasala Heimamanna

Sigmundur M. Atlason, Vilberg Þráinsson og Ólafur Smárason undirbúa flugeldasöluna
Sigmundur M. Atlason, Vilberg Þráinsson og Ólafur Smárason undirbúa flugeldasöluna
1 af 7

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi, sem er eins og venjulega í húsi hennar að Suðurbraut 5 á Reykhólum (beint á móti gámasvæðinu), verður opin kl. 11-22 sunnudaginn 30. desember og kl. 10-14 á gamlársdag.

 

Björgunarsveitin Heimamenn er eins og aðrar björgunarsveitir um land allt innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, frjálsra félagasamtaka með það markmið að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í félaginu eru þúsundir sjálfboðaliða í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum, alltaf til taks er út af bregður á sjó eða landi, á nóttu sem degi, allt árið um kring.

 

Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna um land allt og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra. Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk eindregið til fylgja til hlítar leiðbeiningum um meðferð flugelda og nota hlífðargleraugu, líka þá sem eru bara að fylgjast með.


Hlífðargleraugu fylgja öllum flugeldum og blysum sem keypt eru af björgunarsveitinni.


Björgunarsveitin þiggur líka einnota drykkjarumbúðir, flöskur og dósir. Á dögunum voru talin og send suður rúmlega 11000 stykki, en það leggur sig á um það bil 190.000 kr.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31