Tenglar

28. desember 2015 |

Flugeldasala björgunarsveitarinnar

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi, sem er eins og venjulega í húsi sveitarinnar að Suðurbraut 5 á Reykhólum (beint á móti gámasvæðinu), verður opin fyrir þessi áramót sem hér segir:

  • Þriðjudag 29. desember kl. 19-22.
  • Miðvikudag 30. desember kl. 17-22.
  • Fimmtudag 31. desember (gamlársdag) kl. 10-14.

Síðan verður opið kl. 17-19  á þrettándanum, miðvikudag 6. janúar.

 

Auk flugelda og slíks á markaðinum er björgunarsveitin með slökkvitæki, eldvarnateppi og reykskynjara til sölu.

 

Jafnan eru ýmsir sem vilja styðja Slysavarnafélagið Landsbjörg og einstakar björgunarsveitir með fjárframlögum, koma jafnvel á sölustaði flugelda og „versla“ án þess að taka flugeldana með sér. Hægt er að spara sér slíka ferð með því að millifæra inn á reikninga sveitanna. Hér eru reikningsupplýsingar fyrir þá sem vilja leggja inn á reikning Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi:

 

Kennitala

4307810149

Bnr. - Hb. - Reikn.

0153 - 26 - 000781

 

Björgunarsveitin Heimamenn er eins og aðrar björgunarsveitir um land allt innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, frjálsra félagasamtaka með það markmið að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í félaginu eru þúsundir sjálfboðaliða í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum, alltaf til taks er út af bregður á sjó eða landi, á nóttu sem degi, allt árið um kring.

 

Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna um land allt og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra. Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk eindregið til fylgja til hlítar leiðbeiningum um meðferð flugelda og nota hlífðargleraugu, líka þá sem eru bara að fylgjast með.

 

Sjá nánar: Öryggisatriði varðandi flugelda (vefur Slysavarnafélagsins Landsbjargar)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31