Tenglar

29. desember 2017 | Sveinn Ragnarsson

Flugeldasala björgunarsveitarinnar

1 af 2

 

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi, sem er eins og venjulega í húsi hennar að Suðurbraut 5 á Reykhólum (beint á móti gámasvæðinu), verður opin kl. 11-22 laugardaginn 30. desember og kl. 10-14 á gamlársdag.

 

 

 

Auk skotelda og slíks eru hlífðargleraugu, slökkvitæki, eldvarnateppi og reykskynjarar til sölu.

 

 

 

Björgunarsveitin Heimamenn er eins og aðrar björgunarsveitir um land allt innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, frjálsra félagasamtaka með það markmið að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í félaginu eru þúsundir sjálfboðaliða í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum, alltaf til taks er út af bregður á sjó eða landi, á nóttu sem degi, allt árið um kring.

 

 

 

Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna um land allt og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra. Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk eindregið til fylgja til hlítar leiðbeiningum um meðferð flugelda og nota hlífðargleraugu, líka þá sem eru bara að fylgjast með.

 


    

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31