30. desember 2008 |
Flugeldasala björgunarsveitarinnar Heimamanna
Björgunarsveitin Heimamenn í Reykhólahreppi selur flugelda sér til fjáröflunar í björgunarsveitarhúsinu við Suðurbraut á Reykhólum kl. 13-22 í dag, þriðjudag, og kl. 13-16 á morgun, gamlársdag. Brenna verður 20.30 á gamlárskvöld við Sladdanaust við veginn niður að Þörungaverksmiðju, á sama stað og í fyrra.
Björgunarsveitin Heimamenn óskar jafnframt gleðilegra og slysalausra áramóta.