Tenglar

21. apríl 2009 |

Flutningskerfi raforku á Vestfjörðum óviðunandi

Raflína á Vestfjörðum. Ljósm. af vef Orkubús Vestfjarða.
Raflína á Vestfjörðum. Ljósm. af vef Orkubús Vestfjarða.

Slæmt ástand í afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum hamlar uppbyggingu nútíma atvinnulífs á Vestfjörðum. Hraða verður úrbótum sem gera flutningskerfið samkeppnishæft við aðra landshluta, er ályktun sem draga má af nýrri skýrslu Landsnets, sem ber heitið Bætt afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga fjallaði um efni skýrslunnar á fundi sínum í byrjun þessa mánaðar og hefur í framhaldinu sent erindi til nefndar á vegum iðnaðarráðuneytisins, sem fjallar nú um endurskoðun raforkulaga.

 

Í erindi stjórnar Fjórðungssambandsins er þess m.a. krafist að endurskoðað verði það ákvæði laganna að leggja beri tengigjald á nýja framleiðendur eða kaupendur. Þetta ákvæði hamlar m.a. áformum um uppbyggingu Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði (sjá næstu frétt hér á undan).

 

Erindi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga má finna hér (pdf).

 

Fjórðungssamband Vestfirðinga

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31