10. júlí 2021 | Sveinn Ragnarsson
Fólk er beðið um að spara vatn á Reykhólum
Þorpsbúar á Reykhólum eru beðnir um að fara sparlega með kalda vatnið þessa dagana.
Ástæða þess er sú að nú er að renna í sundlaugina eftir viðgerð á henni og jafnframt er minna í vatnsbólunum vegna þurrka um þessar mundir.