16. júní 2011 |
Fólk getur fengið Vinnuskólann til verka af ýmsu tagi
Ungmennin í Vinnuskóla Reykhólahrepps slá ekki slöku við að snyrta og fegra umhverfið - nema rétt á meðan ljósmyndari kemur á vettvang og verkstjórinn kallar þau saman fyrir myndatöku. Reykhólahreppur minnir á, að fólk sem vill fá mannskapinn til sláttar eða hreinsunar á lóðum og lendum eða í önnur tilfallandi verkefni getur haft samband við Jón Þór Kjartansson verkstjóra í síma 892 3830 eða sent tölvupóst í netfangið skrifstofa@reykholar.is.
Myndin var tekin í dag í Kvenfélagsgarðinum (Hvanngarðabrekkunni) á Reykhólum. Tekið skal fram, að þegar ljósmyndari kom voru allir á fullu við vinnu sína, líka sá sem liggur framan við hópinn. Hann liggur þar bara til þess að myndin yrði „myndrænni“. Smellið á myndina til að stækka hana.