Tenglar

31. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is

Fólk til sumarstarfa á landsbyggðinni

STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf er að kynna verkefni sem ber yfirskriftina Sumarstörf á landsbyggðinni. Það gengur út á að leita eftir samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki vítt og breitt um landið sem hafa í hyggju að ráða til sín sumarstarfsfólk. Með auknum umsvifum í ferðaþjónustu er líklegt að eftirspurn eftir fólki hafi aukist og gengur verkefni STARFs út á það að ná sambandi við þau fyrirtæki sem eru að leita að starfsfólki fyrir sumarvertíðina og fá þau til að ráða til sín fólk sem er á lausu. STARF er nú þegar með á skrá marga einstaklinga sem hafa áhuga á að vinna við ferðaþjónustu úti á landi og er með þessu átaki að aðstoða þá við að finna störfin.

 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þar segir ennfremur:

 

Einstaklingarnir sem um ræðir hafa sýnt því áhuga að starfa t.a.m. á gistiheimilum, veitingahúsum, við afþreyingarferðaþjónustu, bílaleigur, ferðaskrifstofur, flugþjónustu eða hópbifreiðar. Um er að ræða fjölbreyttan hóp með margvíslegan bakgrunn og eru nokkrir með góða menntun og/eða reynslu af ferðaþjónustu. Þeir geta hafið störf nánast strax og starfað vel inn í haustið eða jafnvel til frambúðar.

 

Ferðaþjónustuaðilum, sem hafa áhuga á að skoða þennan möguleika við ráðningar, er bent á að skrá starfið sem í boði er á vefsíðu STARFs - www.starfid.is: (Atvinnurekandi – Beiðni um starfsmann) og tilgreina að um sumarstarf sé að ræða. Einnig má senda póst á skrifstofa@starfid.is og hefur þá atvinnuráðgjafi STARFs samband fljótlega.

 

STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Það var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu við félagsmenn tiltekinna stéttarfélaga sem eru án atvinnu og í atvinnuleit. Þjónustan fer fram á fjórum þjónustumiðstöðvum og starfa 14 atvinnuráðgjafar við verkefnið. Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og markmiðið er að koma atvinnuleitendum aftur til starfa.

 

Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31