Tenglar

5. október 2011 |

Fölva sló á sumardagsins vanga

Í ljósum upphlut við dökkleitt pils.
Í ljósum upphlut við dökkleitt pils.

Fyrsti gráminn í fjöllum á þessu hausti, séð frá Reykhólum, blasti við í morgun. Slydduslummur dundu á rúðum en urðu skammlífar og runnu rétt eins og tár á vöngum. Reykjanesfjallið var grátt og rúmlega það niður í miðjar hlíðar. Hitinn á láglendi fór í tæp tvö stig milli klukkan fimm og átta í morgun en hitastigið lækkar að jafnaði um eina gráðu fyrir hverja hundrað metra hækkun. Stíf norðaustanátt með rigningu hefur verið í dag og síðdegis er gráminn horfinn. Í bili. Grundaráin og Heyáin og aðrar ár sem nærast af fjallinu eru hvítfyssandi og glaðar.

 

Fölva sló á sumardagsins vanga, segir í gamalli vísu. Annað sem þar segir líka og rímar við þetta rætist vonandi ekki svo heitið geti: Haustið verður mörgum erfið ganga.

 

Athugasemdir

Bergsveinn G Reynisson, fimmtudagur 06 oktber kl: 08:51

Falleg lýsing á því sem sumir hefðu kallað "helvítis hret"

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31