14. nóvember 2018 | Sveinn Ragnarsson
Förgun ónýtra rafgeyma
Ábending barst frá Gámaþjónustu Vesturlands um að stundum eru ónýtir rafgeymar settir hjá ruslagámum í sveitinni sem ætlaðir eru undir heimilissorp.
Það eru því vinsamleg tilmæli til þeirra sem þurfa að losa sig við úrgangsefni að setja ekki rafgeyma eða önnur spilliefni við gámana.
Rafgeymar innihalda spilliefni sem eru mjög hættuleg umhverfinu og á að skila eins og öðrum spilliefnum á flokkunarstöðina á Reykhólum.