14. desember 2010 |
Fótboltaæfing fyrir krakka á Reykhólum
Á laugardaginn var Haukur Benediktsson, fótboltaþjálfari í Keflavík, með fótboltaæfingu fyrir krakka á Reykhólum. Þar sem ekkert hefur verið um reglulegar íþróttaæfingar fyrir þessa krakka í haust þótti tilvalið að nýta þetta tækifæri og var gaman að sjá hvað ungmennin voru dugleg. Fyrir hádegi voru krakkar á aldrinum 4 til 8 ára og eftir hádegi voru eldri krakkar og hjálpaði Kristján Þór Kristjánsson til við þjálfunina. Hér fylgja nokkrar myndir sem Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir kennari tók á æfingunni.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.