Tenglar

15. ágúst 2015 |

Frá Cannes til Hólmavíkur

Íslandsmót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu á Ströndum á morgun, sunnudag. Þar verður margt til skemmtunar og meðal annars munu aðalleikarar kvikmyndarinnar Hrúta heyja einvígi í hrútaþukli. Hrútum þykir fátt skemmtilegra en að stangast á og því má vænta þess að baráttan verði hörð og ekkert gefið eftir. „Ég tapaði náttúrulega fyrir Tedda í myndinni, en það var auðvitað bara skáldskapur, hið sanna mun koma í ljós núna,“ segir Siggi Sigurjóns sigurviss. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara.

 

Óhætt er að segja að félagarnir hafi öðlast töluverða reynslu í meðhöndlun hrúta við gerð myndarinnar. „Siggi á ekki séns, hann hefur bara ekki sömu næmni og ég. Það verður skemmtilegt að rúlla honum upp,“ segir Theodór.

 

Keppnin hefst kl. 14 og að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Sauðfjársetrið er til húsa í Sævangi á Ströndum, 12 km sunnan við Hólmavík.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31