Frá vegaframkvæmdunum í Múlasveit
Ljósmyndirnar sem hér fylgja tók Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli fyrir nokkru af vegaframkvæmdunum vestast í Reykhólahreppi. Sú fyrsta er úr Mjóafirði, þar sem unnið er að þverun fjarðarins, tekin rétt austan við Borgarnes, sem er tangi á Litlanesi milli Kerlingarfjarðar og Kjálkafjarðar. Þar eru vinnubúðir verktakans Suðurverks. Á annarri myndinni má sjá jarðlög sem komu í ljós við vegarlagninguna á Litlanesi. Síðan eru þrjár myndir úr Kjálkafirði, tvær af nýja veginum yfir fjörðinn og ein af gamla veginum til samanburðar. Á kortinu á mynd nr. 6 sést nokkurn veginn hvar firðirnir eru þveraðir.
Landamerki Reykhólahrepps og Vesturbyggðar, og þar með Austur- og Vestur-Barðastrandarsýslu, eru í miðjum Kjálkafirði og síðan við Skiptá innarlega í firðinum að austanverðu, eins og bláa brotna línan á kortinu sýnir. Mjóifjörður er svolítill innfjörður eða tota inn úr Kerlingarfirði austan við Kjálkafjörð. Vestasti hluti Reykhólahrepps í núverandi mynd er Múlahreppur hinn gamli eða Múlasveit, vestan við Gufudalshrepp hinn gamla eða Gufudalssveit.
Sjá einnig:
► 27.04.2013 Myndir af skriðunni miklu í Kjálkafirði
► 31.05.2013 Unnið að þverun og brúargerð í Kjálkafirði (margar skemmtilegar myndir)
► 21.02.2014 Vegurinn um Múlasveit ári á undan áætlun
► 23.09.2014 Umferð hleypt á þverunina yfir Kjálkafjörð