Tenglar

23. október 2012 |

Fræðslukvöldi um barnsmissi frestað

Hildur Jakobína Gísladóttir.
Hildur Jakobína Gísladóttir.

Fræðslukvöldi um barnsmissi sem áformað var í Hólmavíkurkirkju annað kvöld hefur verið frestað til fimmtudagsins 1. nóvember á sama stað. Fræðsluerindi flytur Hildur Jakobína Gísladóttir, stofnandi samtakanna Litlir englar. Um er að ræða fræðslu- og spjallkvöld í notalegu umhverfi, ætlað foreldrum og öðrum aðstandendum svo og fagfólki. Flutt verður ítarlegt fræðsluerindi og síðan gefst færi á að spjalla, deila reynslu sinni eða fá svör við fyrirspurnum.

 

 

Um samtökin Litlir englar (af vefsíðu samtakanna):

 

Samtökin Litlir englar eru ætluð þeim sem hafa misst börn sín í móðurkviði, í fæðingu eða stuttu eftir fæðingu, sem og þeim sem þurfa að binda enda á meðgönguna vegna alvarlegs fæðingargalla barns síns. Síðan er einnig ætluð þeim sem misst hafa börn sín einhvern tímann á lífsleiðinni sem og þeim sem einhverra hluta vegna telja sig þurfa á síðunni að halda. Samtökin voru stofnuð þann 26. janúar 2002 af Hildi Jakobínu Gísladóttur, móður lítils engils.

 

Að missa barnið sitt er án efa einn erfiðasti atburður lífs okkar. Eftirvæntingin eftir ófæddu barni okkar er mikil og spennan vex með degi hverjum og konan sem gengur með barnið finnur alltaf einhverja nýja tilfinningu sem hún deilir með maka sínum. En því miður er ekki öllum börnum okkar ætluð framtíð í þeim heimi sem við búum í og eins sárt og það er nú deyja þau frá okkur.

 

Eftir sitjum við með brostið hjarta, tóma vöggu og milljón spurningar sem oft enginn getur svarað. Þessi lífsreynsla er erfið og gott er að geta talað við einhvern náinn eða jafnvel einhvern hlutlausan sem veitir huggun og það er gott að geta talað mikið um tilfinningar sínar þegar svo á stendur.

 

 

Fræðslukvöldið í Hólmavíkurkirkju 1. nóvember hefst kl. 20.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir. Strandasýsludeild Rauða krossins, Reykhólahreppur og Strandabyggð styðja þetta framtak.

 

Hildur Jakobína Gísladóttir

Samtökin Litlir englar

   

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31