6. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Framhaldsdeildin á Hólmavík: Skráning stendur yfir
Fólki á Ströndum og öllum nærsveitungum, svo sem í Reykhólahreppi og Saurbæ ef svo ber undir, gefst í haust kostur á því að stunda framhaldsnám í dagskóla heima í héraði. Þá tekur til starfa á Hólmavík framhaldsdeild á vegum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þetta gildir að sjálfsögðu um fólk á öllum aldri. Forskráning í námið stendur yfir fram á föstudag, 12. apríl.
Viðbrögð fólks við þessu framtaki geta ráðið miklu eða jafnvel öllu um framhaldið.
Áætlað námsframboð má sjá á mynd nr. 2.
Nánari upplýsingar er að fá á heimasíðu FNV og í síma.
Hægt er að innrita sig hér.
► Opinn fundur um framhaldsdeild á Ströndum