Framkvæmdaleyfi Vestfjarðavegar (60)
Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis: Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkarlundar og Skálaness í Reykhólahreppi
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar sl. umsókn Vegagerðarinnar, dags. 16. desember 2019, um framkvæmdaleyfi fyrir Vestfjarðavegi milli Bjarkarlundar og Skálaness. Fyrirhuguð framkvæmd felst í byggingu Vestfjarðavegar frá Bjarkalundi að Skálanesi, byggingu nýs Djúpadalsvegar með austanverðum Djúpafirði og endurbyggingar Gufudalsvegar í vestanverðum Gufufirði, ásamt efnistöku fyrir framkvæmdum og frágangi að framkvæmdum loknum.
Leyfið er gefið út á grundvelli mats á umhverfisáhrifum vegarins, álits Skipulagsstofnunar, Aðalskipulags Reykhólahrepps 2006-2018, umsóknar Vegagerðarinnar, umsagna Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og umhverfis- og náttúruverndarnefndar sveitarfélagsins, ásamt greinargerð með rökstuðningi sveitarfélagsins fyrir veitingu framkvæmdaleyfis.
Framkvæmdaleyfið og öll ofangreind gögn eru aðgengileg hér á heimasíðu Reykhólahrepps undir flipanum Vesfjarðavegur (60)
Vakin er athygli á því að ákvörðun sveitarstjórnar um veitingu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar um leyfið.
Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps
Á heimasíðu verða auk ofangreinds texta, eftirfarandi gögn:
- Framkvæmdaleyfið
- Greinargerð með framkvæmdaleyfi
- Umsókn Vegagerðarinnar
- Framkvæmdalýsing
- Hönnunargögn
- Efnistökuáætlun Vegagerðarinnar
- Umsögn Umhverfisstofnunar
- Umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands
- Umsögn umhverfis- og náttúruverndarnefndar
10. Álit Skipulagsstofnunar
11. Matsskýrsla Vegagerðarinnar
12. Breyting á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018
Vestfirðingur, sunnudagur 22 mars kl: 13:03
Vestfirðingar vina svo sannarlega að ekki verði frekari tafir.