Tenglar

18. júní 2020 | Sveinn Ragnarsson

Framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnar í Flatey

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní sl. umsókn Vegagerðarinnar, dags. 15. maí 2020, um framkvæmdaleyfi fyrir gerð sjóvarnar í Flatey. Skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins hefur framfylgt ákvörðun sveitarstjórnar með útgáfu framkvæmdaleyfis.

 

Verkið felur í sér byggingu á sjóvörn við gamla þorpið á um 30 metra kafla og eru verklok áætluð eigi síðar en 1. ágúst 2020.

Leyfið er veitt með vísan í 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, s.br. 5., 6. og 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

 

Framkvæmdin er í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir, sbr. 10. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 en í gildi er deiliskipulag af svæðinu og í Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 er lögð áhersla á að spornað verði við landbroti af völdum sjávargangs með styrkingu og viðhaldi sjóvarnargarða.

 

Framkvæmdin er innan verndarsvæðis í byggð fyrir Flatey og er m.a. að hluta til innan 15 metra verndarsvæðis við Stóragarð sem er friðað mannvirki. Samkvæmt 6. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015 auglýsti sveitarstjórn hina fyrirhuguðu framkvæmd áður en málið var tekið þar til afgreiðslu og gafst athugasemdafrestur frá 25. maí til 15. júní.

 

Leitað var umsagna hjá Minjastofnun Íslands og Breiðafjarðarnefnd sem gerðu ekki aðrar athugasemdir við framkvæmdina en að hún uppfyllti skilyrði varðandi verndarsvæði í byggð. Hefur þeim skilyrðum verið uppfyllt.

 

Auk þess verður ráðist í endurbætur á ferjubryggjunni í Flatey en hún sú framkvæmd er ekki leyfisskyld með vísan í 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012

 

Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi.

Sjá einnig útboðsteikningar hér

Athugasemdir

Gunnar Sveinsson, laugardagur 20 jn kl: 14:02

Ánægjulegt að sjá þetta, að þessi nauðsynlega framkvæmd er komin á rekspöl þó hún sé ekki enn komin í höfn. Vonandi verður þetta byrjunin á vörnum gegn ágangi sjávar í Flatey. Víða má sjá eyðingaöflin að verki; slysagildra undir hömrunum í Grýluvogi þar sem börn eru gjarnan að leik, hinn einstæði Silfurgarður er að skemmast hægt og bítandi, Stórigarður er að láta á sjá og hin fornfræga bryggja Eyjólfsbryggja farin og orðin eyðingaöflum að bráð.
Hvet alla til að láta hendur standa fram úr ermum til að klára þessar nauðsynlegu framkvæmdir í Flatey.
Með framkvæmda- og baráttukveðjum
Gunnar Sveinsson, Eyjólfshúsi, Flatey

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31