„Framúrskarandi fyrirtæki“ annað árið í röð
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum er annað árið í röð meðal þeirra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Creditinfo til að fá viðurkenningu sem „framúrskarandi fyrirtæki“. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá reyndust 245 eða langt innan við eitt prósent uppfylla skilyrðin. „Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi“, segir á vef Creditinfo.
Að mati Creditinfo er „mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.“
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo á því hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010
- Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
- Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
- Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
- Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008-2010
- Að eigið fé sé 20% eða meira rekstrarárin 2008-2010
- Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
- Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo
Meðfylgjandi mynd tók Þórarinn Ólafsson við Reykhólahöfn í gær. Aldan hefur skolað þara upp á bryggjuna þar sem Grettir liggur, hið nýja flutningaskip Þörungaverksmiðjunnar. Fjær (smellið á myndina til að stækka hana) má sjá bláan kinnunginn á Karlsey gömlu sem enn liggur á Reykhólum enda þótt hún hefði átt að vera löngu farin.
27. febrúar 2011 Þörungaverksmiðjan er „framúrskarandi fyrirtæki“