Tenglar

27. apríl 2010 |

Frestun Dýrafjarðarganga mun reynast samfélaginu dýr

Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga skorar á samgöngunefnd Alþingis að setja aftur inn á samgönguáætlun áranna 2009-2012 framlög til Dýrafjarðarganga og staðfesta þannig fyrri vilja Alþingis og Vestfirðinga að göngin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar verði sett á áætlun samhliða Norðfjarðargöngum sem næsta jarðgangaframkvæmd á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í áskorun vegna Dýrafjarðarganga og Vestfjarðavegar 60 sem nefndin samþykkti á fundi sínum í gær.

 

„Ekki ætti að þurfa að rökstyðja mikilvægi Dýrafjarðarganga fyrir framtíð byggðar á Vestfjörðum, svo mjög sem rætt hefur verið um samgönguerfiðleika á milli Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu á undangengnum áratugum. Dýrafjarðargöng eru forsenda allra áætlana um uppbyggingu atvinnulífs, þjónustu og opinberrar stjórnsýslu á Vestfjörðum, hvort heldur litið er til Sóknaráætlunar 20/20, byggðaáætlunar, samvinnu eða sameiningar sveitarfélaga eða annarrar opinberrar þjónustu," segir í ályktuninni.

 

Þar segir jafnframt: „Dýrafjarðargöng og uppbygging vegar um Dynjandisheiði sameinar byggðir Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu í eitt atvinnu- og stjórnsýslusvæði og er alger forsenda þess að opinberar áætlanir um uppbyggingu á Vestfjörðum nái fram að ganga. Frestun Dýrafjarðarganga, þó ekki sé nema um nokkur ár, mun reynast samfélaginu dýr.

 

Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga vill minna á að framlög til vegar um Barðastrandarsýslu á milli Bjarkalundar og Flókalundar hafa áður verið ákveðin og Dýrafjarðargöng eiga ekki að hafa áhrif á þá stefnu að koma byggðum Barðastrandarsýslu í heilsársvegasamband við þjóðvegakerfi landsins. Nú er útlit fyrir að Vesturbyggð og Tálknafjörður verði einu þéttbýlissvæði á landinu sem enn hafa ekki nútímavegasamband við aðra landshluta að tveim árum liðnum, hvort heldur er sunnan Breiðafjarðar eða norðan. Vestfirðingar skora á Alþingi að sýna vilja í verki með því að samþykkja úrbætur í þessum efnum á samgönguáætlun nú þegar."

 

Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga er kjörin á Fjórðungsþingi Vestfirðinga og starfar sem fagnefnd sambandsins í samgöngumálum. Nefndin vinnur álitsgerðir og gerir tillögur að umsögnum til stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31