Tenglar

4. mars 2021 | Sveinn Ragnarsson

Frestur framlengdur til 15. apríl

Frestur  til að sækja um sérstakan styrk fyrir börn frá tekjulægri heimilum sem eiga rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrk á skólaárinu 2020-2021 hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021.

 

Greint er frá framlengingunni á vef Félagsmálaráðuneytis.

 

Styrkurinn er veittur grunnskólabörnum sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí árið 2020.

 

Styrkurinn er að hámarki 45.000 krónur fyrir hvert barn sem stundar skipulagt tómstunda- og/eða íþróttastarf undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundastarfi sem greitt var fyrir í upphafi skólaárs, eða frá hausti 2020.

 

Frekari upplýsingar er að finna á Ísland.is en þar er líka hægt að sækja um styrk.

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31